Velkomin á Ísfólksvefinn

<Ísfólksvefurinn>

09.10.2006 22:01:36 / Shira

Nýtt útlit, ný færsla ;)

Nýjustu fréttir af nýju Ísfólksútgáfunni eru þær að bók nr. 4, Vonin, er væntanleg á markaðinn. Þar segir frá henni Yrju sem verður ástfangin af Tarlald Meiden af ætt Ísfólksins. En hann er yfir sig ástfanginn af frænku sinni Sunnivu. Já, einn major ástarþríhyrningur hér á ferð, þó ekki á alla vegu.



~

Aðrar fréttir eru þær að nú eru líka á leiðinni á markaðinn fyrstu tvær Ísfólksbækurnar.....aftur...... en í sömu útgáfu og nr. 3 og 4. Þ.e., það er verið að endurútgefa nýju útgáfuna. Hahaha, já, lidt complicated. En ef maður byrjar að safna nýju útgáfunni þá verður hún a.m.k. jafnhá í bókahillunni og eins teikningar á coverunum.

~

Heyrðu, og svo er Ísfólks-forumið alveg á fleygiferð. Meðlimir eru orðnir 47 talsins og fyrsta online samkvæmið var haldið fyrir tæpri viku og heppnaðist það bara mjög vel :) Hvet alla Ísfólksaðdáendur til að skrá sig inn og taka þátt í mjööög líflegum og skemmtilegum umræðum um okkar ástkæra Ísfólk og annað því tengt.


Hey, hvernig finnst ykkur nýja lúkkið? Bannerinn er eitthvað í felum, en það lagast vonandi þegar öllum viðgerðum á blog.central er lokið :)
 

» 12 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 23:34:29 / Shira

....



VÚHÚÚÚÚÚÚ


Það er komið Ísfólksáhugamál á hugi.is ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 18:31:22 / Shira

3. bókin komin út

Skelli hérna inn einni fréttaslettu:

Núna er 3. bókin - Hyldýpið komin út í nýrri, get því miður ekki sagt bættri, útgáfu. Eins og flestir vita er þetta bókin um hana Sunnu Angelicu og hennar stormasama líf. Fæst í öllum betri bókabúðum og stórmörkuðum (hehe, held ég allavega ;))

Þetta er það sem stendur aftan á bókarkápunni:

HYLDÝPIÐ
Sunna Angelíka var orðin tvítug og hélt út í hinn
stóra heim. Loksins var hún frjáls og gat leitað uppi
nornirnar við Brösarps-hæðir, tilbeðið fursta
myrkranna og gert allt sem hana hafði svo
lengi dreymt um.
Sunna var þó ekki með allan hugann við það illa.
Hún var reiðubúin að leggja allt í sölurnar fyrir sína
nánustu, jafnvel fórna lífi nu....

oooog coverið.

Heyrðu, það kemur víst önnur fréttasletta:

Það er gaman að segja frá því að Ísfólksforumið dafnar vel og núna hafa 27 manns skráð sig inná sem notendur, og er það ekkert nema frábært!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 19:21:53 / Shira

Nýr mánuður, nýjar fréttir ;P

Já, það eru ár og öld síðan ég setti eitthvað nýtt hérna inná, en nú, dömur mínar og kannski einn herra, er komið að því:

Nýlega var stofnað íslenskt Ísfólks-forum, magnað framtak og ég hvet alla til að kíkja þangað inná og taka þátt í skemmtilegum umræðum um þetta sameiginlega áhugamál okkar: Ísfólkið og allt sem tengist því. Svo, þegar þú ert búin/nn að skoða þessa síðu ættirðu að skoða Ísfólksforumið.
Enjoy :D;)

Linkurinn:

http://isfolkid.proboards102.com

» 6 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 19:51:28 / Shira

Nýjungar :D

Já, ótrúlegt en satt, þá er ég búin að bæta myndum af persónum úr Ísfólkinu inná síðuna (:D) og svo setti ég norska útgáfu af ættartré Ísfólksins inná líka!

Núna áðan setti ég líka nýjar myndir inná: Photoshoppaðar myndir

*Enjoy*


» 18 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 21:23:05 / Shira

Smá....

....til að koma í veg fyrir fýluferðir á bókasöfn, þá mæli ég með því að þið farið inná gegnir.is og leitið að bókum þar sem þið viljið taka, bara til að tékka hvort þær séu ekki örugglega inni ;) Uppáhaldssíða bókasafnasjúklinganna :D

GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR :)

Gaman að segja frá því að ég fékk fyrstu Ísfólksbókina í nýju útgáfunni í jólagjöf....ég er reyndar ekki byrjuð að lesa hana (Harry Potter fékk að ganga fyrir ;)) en vonandi er hún í lagi :)


» 79 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 00:08:53 / Shira

Finally :D

Já, loksins, loksins bætti ég einhverju smááá inná :D

Ég ætlaði að setja inná einhverjar myndir en þetta myndadót hérna á blog.central var ekki alveg að vinna með mér....hmm.....8|
En í staðinn lagaði ég Quiz-ið hérna, tók út það sem virkaði ekki og lagaði eitt, og þið finnið það og vonandi virkar þetta!!

---------> Quiz - Hver er giftur hverjum?

p.s. það væri fínt ef þið mynduð láta mig vita ef þetta virkar ekki :D


» 63 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 22:47:42 / Villimey

*Nýtt*

Ný skoðanarkönnun
Ný persóna vikunnar
Nýr ísfólksaðdáandi

á leiðinni..

Nýjar myndir
og eflaust eitthvað fleira :D


» 64 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 22:39:45 / Villimey

Fyrirgefið!

Vá! Ég hef sko aldeilis ekki verið að standa mig í þessu núna! En núna hef ég meiri tíma og lofa að vera mjög virk :D
En já, æðislegar fréttir! Ísfólksbækurnar í endurútgáfu! Þetta er allavega númer eitt á óskalistanum mínum í ár :D;) ég er reyndar ekki alveg að fíla nýju myndskreytingarnar en meðan að innihaldið er óbreytt er ég sátt :Ð Núna ætla ég að skella mér í smá viðbót á síðuna! Vonandi takið þið eftir því! :D

love Klara ;D


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 15:11:28 / Shira

Myndir

Ég fór að leita að myndum af Ísfólkinu inná netinu, og ég rakst á eina FanArt-síðu þar sem eru nokkrar myndir:

www.elfwood.com - Search - "Sagan om Isfolket", "Sol" eða annað leitarorð tengt ísfólkinu.

Sumt af þessu er geðveikt flott, en þetta er auðvitað bara teiknað eins og höfundarnir sjá persónurnar fyrir sér.
Þetta er verndað af einhverjum höfundalögum þannig að ég get ekki sett myndirnar hérna á síðuna :(


» 64 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 20:05:18 / Shira

.

Nokkrar fréttir sem mig langar að koma hérna á framfæri:

Ég sá auglýsingu í Blaðinu um daginn um endurútgáfu Ísfólksins, þar var reyndar auglýst að fyrstu TVÆR bækurnar séu komnar út :D og leiðbeinandi verð er 1.495 kr. og er gefið út af bókaútgáfunni Jentas, sem ég held að sé fyrrverandi PP-forlag og er norrænt útgáfufyrirtæki. ´
Bláa og hvíta þemað utan á bókunum hefur vikið fyrir nýjum lit, appelsínugulum, og eru menn missáttir við það :) Hvað finnst ykkur svo um teikningarnar á coverinu?? Persónulega þá sakna ég gömlu myndanna, en það er örugglega bara út af því að ég er haldin nostalgíu!! ;)

Svo eru Ísfólksaðdáendum smátt og smátt að fjölga, minni ykkur á að kíkja þangað ;)

Svo auglýsi ég aftur eftir einhverjum sem hafa teiknað myndir af persónunum úr Ísfólkinu/Galdrameistaranum/Ríki ljóssins og vilja vera svo yndislegir að deila þessum myndum með okkur hérna á síðunni, nafnlaust eða með nafni :D


» 97 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 16:39:25 / Shira

ÍSFÓLKIÐ ENDURÚTGEFIÐ!!!!!!

Já, þetta er satt. Fyrsta ísfólksbókin, Álagafjötrar, er komin út á ný í verslanir í nýrri þýðingu Snjólaugar Bragadóttur (sem þýddi Ríki ljóssins) :D:D:D Hversu magnað er þetta??!!!

Coverið er breytt, sem ég er reyndar ekki mjög sátt við, en þýðingin er MIKLU betri, engar prentvillur og ekki eins fljótfærnislega gert :)

Bókin fæst allavega í Eymundson og kostar um 1600 krónur.

Víííí :D:D:P


» 81 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 23:43:11 / Villimey

Nýr Stjórnandi :D

Hæhæ, núna er ég byrjuð með þessa síðu með Önnu Elísu :Ð
En ég er reyndar að fara til Boston í viku :').. svo verð örugglega ekki virk fyrr en í næstu viku ;) en endilega kikið á nýju skoðanakönnunina og svo gerði ég Um.Mig.. s.s. Klara :D
Og jáá.. vonandi fer þessi síða bara aftur á flug!

kv. Klara (Villimey)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 17:35:06 / Shira

Ísfólksaðdáendur

Ísfólksaðdáendasíðan er í fullum gangi - var að bæta einum aðdáenda inn núna rétt áðan ;) Vildi bara minna ykkur á þetta :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 14:26:09 / Shira

Nýr stjórnarmeðlimur :)

Já, nú erum við orðnar tvær sem sjáum um þessa síðu, ég og Klara (Villimey), svo nú verður þessi síða kannski aðeins meira lifandi!!!

Og endilega hefjið umræður eða eitthvað um ís´fólkið hérna á kommentunum :D

enjoy


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2